
FORNÁM - Alhliða undirbúningur fyrir nám í hönnun og listum á æðra skólastigi
Myndlistaskólinn á Akureyri býður upp á hnitmiðað 39 eininga heildstætt nám í sjónlistum. Námið er skipulagt með hliðsjón af aðalnámskrá framhaldsskóla og í því felst listrænn og tæknilegur undirbúningur fyrir framhaldsnám á sviði myndlistar, hönnunar og arkitektúrs.
Umsókn um skólavist þarf að berast skólanum fyrir 3. júní nk. ásamt umbeðnum gögnum og tilskyldum fjölda eigin myndverka. Inntökunefnd áskilur sér rétt til að boða umsækjendur til viðtals dagana 3. til 7. júní, telji hún ástæðu til.
SÉRNÁM Starfsmenntun í myndlist og grafískri hönnun, 90 eininga nám
FAGURLISTADEILD - MYNDLIST
Nám í fagurlistadeild er fjölþætt, þriggja ára sérhæft nám sem veitir starfsmenntun í frjálsri myndlist.
LISTHÖNNUNARDEILD GRAFÍSK HÖNNUN
Á þremur árum öðlast nemendur yfirgripsmikla þekkingu og þjálfun í grafískri hönnun sem gerir þá hæfa til að fást við krefjandi verkefni á sviði hönnunar fyrir prentmiðla og margmiðlun.
Umsókn um skólavist þarf að berast skólanum fyrir 3. júní nk. ásamt umbeðnum gögnum og tilskyldum fjölda eigin myndverka. Inntökunefnd áskilur sér rétt til að boða umsækjendur til viðtals dagana 3. til 7. júní, telji hún ástæðu til.

Gold - European Student of the Year - how2own - Margrét Ingibjörg Lindquist - Iceland
ADC*E eru samtök fagfélaga grafískra hönnuða í Evrópu sem hafa það að markmiði kynna og verðlauna framúrskarandi hönnun í þeim löndum sem að samtökunum standa. Á heimasíðu ADC*E segir m.a. að samtökin hafi verið stofnuð 1990 til að efla og kynna evrópskt hugvit og sköpun á sviði hönnunar og auglýsingagerðar. Samtökunum er ætlað að skerpa skilning á sérkennum evrópulandanna og kynna á alþjóðavettvangi með útgáfustarfsemi og sýningarhaldi. ADC*E er þess vegna einskonar gluggi að skapandi samfélagi Evrópuþjóða.
ADC*E verðlaunahátíðin er einstök fyrir þær sakir að þar er safnað saman því besta sem hönnuðir hafa afrekað í hverju þátttökulandi, í auglýsingagerð, hönnun, umbroti, myndskreytingu, kvikmyndun, margmiðlun og ljósmyndun. Þegar aðildarfélögin hafa skilað inn verkum sem hlutu viðurkenningar í hverju landi fyrir sig taka dómarar til starfa og velja 30 bestu sem síðan eru kynntir í veglegri bók ADC*E Award Annual 2008.
Fyrsti Íslendingurinn til að vinna til verðlauna er Margrét Ingibjörg Lindquist frá Akureyri. Hún fékk „gullið“ og nafnbótina „European Student of the Year“ fyrir verkið sitt how2own, sem hún vann í Myndlistaskólanum á Akureyri. Í febrúar sl. hlaut Margrét viðurkenningu FÍT fyrir þetta frábæra verk.
Myndlistaskólinn á Akureyri
Kaupvangsstræti 16
Pósthólf 39
600 Akureyri
info@myndak.is
Sími.: 462 4958
GSM.: 898 5359